
Í greininni er veitt yfirlit yfir sögu tékkneskrar tungu og tékkneskrar málstýringar. Áhersla er lögð á að rekja sögu þess hvernig erlend orð, bæði tökuorð og sérnöfn, skila sér í tékkneskum textum. Málgerð tékknesku, sem er mikið beygingamál, veldur því að almennt er vandkvæðum bundið að laga tökuorð að málinu, óháð málstefnu. Skipulögð málstýring í tékknesku er tiltölulega umfangsmikil og mikil áhersla er lögð á staðlaða stafsetningu. Alla 20. öldina komu út Tékkneskar réttritunarreglur (Pravidla českého pravopisu) og þar var fjallað var um ritun tökuorða og einnig erlendra sérnafna og örnefna. Það er í því samhengi sem niðurstöður rannsókna minna, á sögu þess hvernig farið er með íslensk nöfn í tékknesku, eru kynntar. Nú er að verða almennt viðtekið í þýðingum úr norrænu (forníslensku) yfir á tékknesku að upprunalegum myndum sé haldið og að tékkneskar beygingar bætist við stofna hinna norrænu orða, þ.e. án nefnifallsendinga þeirra. Í þýðingum á íslenskum nútímabókmenntum yfir á tékknesku er aftur á móti ekki að sjá neina viðleitni til þess að samræma meðferð sérnafna. Eigi að síður má greina í þeim ákveðna sameiginlega þætti, þar á meðal að sleppa nefnifallsendingum nafna í karlkyni þar sem þau koma fyrir í aukaföllum í tékknesku þýðingunum en halda þeim hins vegar þar sem þau koma fyrir í nefnifalli í tékkneskunni.
| selected citations These citations are derived from selected sources. This is an alternative to the "Influence" indicator, which also reflects the overall/total impact of an article in the research community at large, based on the underlying citation network (diachronically). | 0 | |
| popularity This indicator reflects the "current" impact/attention (the "hype") of an article in the research community at large, based on the underlying citation network. | Average | |
| influence This indicator reflects the overall/total impact of an article in the research community at large, based on the underlying citation network (diachronically). | Average | |
| impulse This indicator reflects the initial momentum of an article directly after its publication, based on the underlying citation network. | Average |
