Downloads provided by UsageCounts
Í verkefninu voru geitfjárbændur aðstoðaðir við þróun á nýjum matvörum úr geitahráefnum. Vöruþróunarátakið var kynnt meðal geitfjárbænda í samstarfi við Geitfjárræktarfélag Íslands. Geitfjár-bændur gátu sótt um þátttöku en starfsmenn Matís völdu 5 bændur til að halda áfram. Starfsmenn Matís veittu aðstoð við leyfismál, gerð gæðahandbóka og allt vöruþróunarferlið. Gengið var úr skugga um öryggi afurðanna með örverugreiningum og næringarefni voru mæld til að hægt væri að setja fram upplýsingar um næringargildi. 17 matvörur voru þróaðar í verkefninu, flestar úr geitakjöti, en einnig vörur úr lifur og hjörtum ásamt geitamjólkurskyri. Reiknað er með að verkefnið leiði til fjölgunar matvara úr geitahráefnum á markaði og það muni smám saman leiða til fjölgunar í geita-stofninum. Auk vöruþróunar voru gerðar mælingar á tegundum kaseina (ostefna) í geitamjólk. Kaseingerðin alfa-s1 greindist í umtals-verðum mæli og má af því draga þær ályktanir að íslensk geitamjólk henti vel til ostagerðar. Einnig voru gerðar mælingar á steinefnum í geitamjólk og snefilsteinefnum í kiðakjöti. Niðurstöður fyrir þessi næringarefni nýtast við kynningu á hollustu afurðanna.
Styrktaraðili: Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Geitaafurðir, Næringargildi, Kasein, Vöruþróun
Geitaafurðir, Næringargildi, Kasein, Vöruþróun
| selected citations These citations are derived from selected sources. This is an alternative to the "Influence" indicator, which also reflects the overall/total impact of an article in the research community at large, based on the underlying citation network (diachronically). | 0 | |
| popularity This indicator reflects the "current" impact/attention (the "hype") of an article in the research community at large, based on the underlying citation network. | Average | |
| influence This indicator reflects the overall/total impact of an article in the research community at large, based on the underlying citation network (diachronically). | Average | |
| impulse This indicator reflects the initial momentum of an article directly after its publication, based on the underlying citation network. | Average |
| views | 7 | |
| downloads | 10 |

Views provided by UsageCounts
Downloads provided by UsageCounts