
doi: 10.33112/th.100.2.5
Bakgrunnur Öldruðum kemur til með að fjölga hratt á næstu áratugum ef mannfjöldaspár ganga eftir. Með fjölgun í hópi eldra fólks má áætla aukið álag á heilbrigðiskerfið. Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu hefur lítið verið rannsakað en ef næringarþörf þessa viðkvæma hóps er mætt má mögulega stuðla að auknum lífsgæðum, minni þjónustuþörf, færri legudögum á sjúkrahúsum og ótímabærum búferlaflutningi á öldrunarheimili. Tilgangur rannsóknarinnar var að meta næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni sem fá þjónustu frá heimahjúkrun Heilbrigðistofnunar Norðurlands (HSN). Aðferð Rannsóknin var þversniðsrannsókn. Heimahjúkrun skimaði skjólstæðinga sína (n=193), ≥65 ára í sjálfstæðri búsetu á Akureyri og nágrenni í mars 2022 með matstækinu „Mat á áhættu fyrir vannæringu“ sem finnst í Sögu sjúkraskrá. Skimunin gefur skjólstæðingunum stig (0-30) eftir því hve mikil áhættan er talin vera á vannæringu, þar sem hærri stig lýsa meiri áhættu. Við skimun þarf að skrá hæð og þyngd, skoða þyngdarsögu m.t.t. þyngdartaps, svara spurningum um t.d. ógleði, uppköst og niðurgang, erfiðleika við að kyngja eða tyggja, nýlega sjúkrahúslegu og aðgerð. Í lok skimunar gefur matstækið stig eftir svörum skjólstæðingsins. Niðurstöður Miðgildi aldurs var 84 ár (IQR:10), miðgildi þyngdar 79 kg (IQR:24) og miðgildi líkamsþyngdarstuðuls (LÞS (kg/m2) 27,5 (IQR:7,5). Í heild voru 4% með LÞS <18,5 og 35% þátttakenda með LÞS ≥30. Alls reyndist 31,1% þátttakenda vera með ákveðnar líkur á vannæringu (3-4 stig) og 5,2% vera með sterkar líkur á vannæringu (≥5 stig). Ósjálfrátt þyngdartap undanfarið, viðvarandi léleg matarlyst eða ógleði og nýleg dvöl á sjúkrastofnun voru veigamestu áhættuþættirnir meðal þátttakenda sem höfðu ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu (≥3 stig). Ályktanir Niðurstöðurnar sýna að 36% (n=70) einstaklinga í sjálfstæðri búsetu á Akureyri með þjónustu frá heimahjúkrun eru með ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu. Þörf er á forvörnum og íhlutandi aðgerðum til að stuðla að fullnægjandi næringarinntekt eldra fólks í sjálfstæðri búsetu. Lykilorð Eldra fólk, næringarástand, sjálfstæð búseta, þversniðsrannsókn, skimun.
| selected citations These citations are derived from selected sources. This is an alternative to the "Influence" indicator, which also reflects the overall/total impact of an article in the research community at large, based on the underlying citation network (diachronically). | 0 | |
| popularity This indicator reflects the "current" impact/attention (the "hype") of an article in the research community at large, based on the underlying citation network. | Average | |
| influence This indicator reflects the overall/total impact of an article in the research community at large, based on the underlying citation network (diachronically). | Average | |
| impulse This indicator reflects the initial momentum of an article directly after its publication, based on the underlying citation network. | Average |
